Leynilögga á vappi í Janúar
Kúldrast í kuldanumRjúpan í leyniham
Nýjir tímar. Starri lepjar úr þakrennu og horfir hugsinn framan í vindinn og hugsar: "Djöfull er kalt í dag". Flýgur svo í næsta ruslagám. Steypupotturinn við reykhornið er eins og kaktus þar sem er búið að stinga stubbunum í snjóinn. Djöfull er kalt í dag! Af hverju þurfti gluggamaðurinn að skipta um glugga á Barnum núna, nákvæmlega þegar ég var buin að koma mér svona vel fyrir hérna.Fréttatilkynning: Ćla gefúr út sína fyrstu breiđskífuRjúpan í leyniham
Hljómsveitin Æla hefur verið starfandi í þeirri mynd sem hún er í dag frá árinu 2003. Í upphafi átti Æla bara að vera gott partý en nú er komin út breiðskífa sem ber heitið „Sýnið tillitssemi, ég er frávik“. Skrautleg sviðsframkoma og kyngimagnaður kraftur á sviði verið aðaleinkenni hljómsveitarinnar þar sem forsprakki sveitarinnar er vopnaður stól og þráðlausum gítarsendi og á hann til að príla uppí rjáfur eða jafnvel útaf staðnum. Æla leikur pönkskotna rokkmúsík sem hefur verið líkt við hljómsveitir á borð við The Rapture, Purk Pillnikk, Minute Men og Shellac. Platan inniheldur 15 lög sem tekin voru upp á síðasta ári í Keflavík. Ingi Þór Ingibergsson stjórnaði upptökum og sá um hljóðblöndun ásamt hljómsveitinni sjálfri.
Það er Geimsteinn í Keflavík sem gefur út og Sena sér um dreifingu. Formlegir útgáfutónleikar verða auglýstir síðar en Æla er að spila á Paddy´s, Keflavík á fimmtudaginn 20. júlí ásamt Koju og Lokbrá. Æla – Sýnið tillitssemi, ég er frávik:
Ekki snerta mig
Óður til hinna guðdómlegu neanderdalsmanna
Tequila Sundown
Hommar
Pirringur
Banani bjargaði lífi mínu
Magnarinn
Blómin og gleðin
B.P. í heimi
Hneit þar
Febrúar
Fuglinn í fjörunni
Rockville/Byrgið
Hent´essu í mig
Love the Honey
Þá er bara að skreppa í næstu plötubúð og biðja um Ælu.
Ćla á Grand Rokk á fös. ásamt The Gang og Benny Crespo´s GangRjúpan í leyniham
Staðsetning: Grand RokkDags- og tímasetning: 23. júní 2006 kl. 23:00
Fram koma: The Gang (New York, USA), Æla & Benny Crespo's Gang
Aðgangseyrir: 500 kr.
= = = The Gang = = =
Hljómsveitin The Gang á sér tæplega fimm ára sögu og á sínar rætur að rekja til Newark í New Jersey, Hamptons, Brooklyn og Reykjavík. The Gang rann undan rifjum sveita á borð við The Lapse (Southern Records (Karate, Les Savy Fav, Crass, Dälek o.fl.)), The Holy Childhood, Vague Angels og fleiri. The Gang er þessa stundina í miðri vinnslu á þeirra fyrstu breiðskífu sem kemur til með að líta dagsins ljós með haustinu.
Hljómur The Gang er margræður og ómþýður og mætti segja hana hljóma eins og blöndu af Bruce Springsteen án stálgítars, vannærðum Psychedelic Furs, Can í þjóðsöngsbúning og Sgt. Pepper's Lonely Heart Club Band með Bítlunum ef þeir væru í vígahug.
Meðlimir The Gang eru Gary Keating, Eva Jóhannesdóttir, Rich Bonner, Danny Leo og Marike Damhuis.
Upplýsingar gefur Eva í síma 864-4946
= = = Benny Crespo's Gang = = =
Benny Crespo's Gang hefur verið að vekja á sér athygli á þessu ári.
Hljómsveitin hefur notið töluverðra vinsælda á vefsetrinu rokk.is síðastliðin tvö ár og hafa þau sótt í sig veðrið á öldum ljósvakans og hafa lög þeirra fengið töluverða spilun á XFM og Xinu 97.7 sem og á Rás 2.
Nýverið komst sveitin til mála hjá nýju hljómplötuútgáfu COD Music og er væ
Tónlist sveitarinnar mætti kalla blöndu af ólíkum stefnum innan rokkheimsins og má heyra áhrif sveita á borð við The Mars Volta, Blonde Redhead, Queens of the Stone Age o.fl. Benny Crespo's Gang kemur fram í sitt annað skipti á Iceland Airwaves í ár.
Meðlimir Benny Crespo's Gang eru Helgi Rúnar, Lovísa Elísabet, Magnús Öder og Björn Sigmundur.
Upplýsingar gefa Helgi Rúnar í síma 823-6090
= = Æla = =
Æla úr Keflavík hefur getið af sér gott orðspor sem ein líflegasta jaðarrokksveit. Hljómsveitin bar fyrst á góma á eftirminnilegum tónleikum í Tjarnarbíói á Menningarnótt árið 2003 þar sem hún tróð upp með ekki ómerkari sveitum en Kimono, Stilluppsteypu, Maus, Ghostigital og fleiri.
Eins og nafnið gefur e.t.v. til kynna þá er Æla í grunninn pönksveit sem hefur m.a. sótt í brunn sígildra pönksveita á borð við Television og Purrk Pillnikk en það er þó engan veginn tæmandi lýsing á sveitinni því einnig svífa andar sveita á borð við The Rapture, Shellac og Minutemen yfir vötnum.
Ekki amarlegt það.
Sviðsframkoma Ælu er ansi hressileg þar sem forsprakki sveitarinnar er vopnaður stól og þráðlausum gítarsendi og á hann til að príla uppí rjáfur eða jafnvel útaf staðnum.
Væntanleg er fyrsta breiðskífa Ælu, "Sýnið tillitsemi, ég er frávik", hjá útgáfuheimili Geimsteins í Keflavík í byrjun júlí.
Nánari upplýsingar gefur Halli Valli í síma 692-8042
* * * * * * * * * * * * * * * *
Einnig er mælandi með að fólk kynni sér The Lapse til gagns og gamans af því það var einstaklega vel heppnuð hljómsveit í alla staði, sér staklega fyrir þau sem fíla bönd á borð við Blonde Redhead, Fugazi, Les Savy Fav, Ted Leo og fleiri..
http://www.southern.com/southern/band/LAPSE/biog.html
Smára saga KláraRjúpan í leyniham
2. kafli
Í þenna tíma var ófriður mikill í Noregi. Þar var til ríkis Hafþór lúfa son Skúla hurðar. Hann var áður konungur á Heiði. Herjaði hann svo suður eftir landinu og lagði undir sig hvar sem hann fór. En er hann kom upp á Hörðaland kom á móti honum múgur og margmenni. Voru þar fyrir Ævar hinn auðgi og Sveinn hinn helgi.
Þetta haust komu þeir vestan um haf, Smári Klári og hans félagar. Er þeir fréttu það Ævar hin auðgi og Sveinn hinn helgi. Þá sendu þeir menn til móts við þá báðu þa´liðs og hétu þeim sæmdum. Smári var forvitin að reyna á sig vildi vera sem sterkastur í orustu.
Orusta þeirra við Hafþór lúfa konung varð á Rogalandi. Hvorirtveggja höfðu mikið lið. Orustan var ein sú mesta í Noregi.
Smári lagði skipi sínu við hlið Ævars hins auðga. Var það í miðjum hernum. Hafþór konungur lagði að skipa Ævars hins auðga því Ævar var hinn mesti berserkur og fullhugi. Var þar hin harðasta orusta af hvorum tveggja. Ævar barðist alldjarflega en féll á skipi sínu með mikilli hreysti. Smári klári hjó þá á tengsl skipanna og seig það aftur á milli skipanna. Lögðu konungsmenn þá að skipi Smára Klára.
Þá mæltu konungsmenn: "Þessi gengur hart fram, enda kastaníubrúnn. Látum hann ekki gleyma því að hann hafi komsð í nokkurn háska"
Smári Klári stóð út borð og hjó til manns og í því var lagt til hans. Er hann bar af sér höggið kiknaði han við. Þá hjó einn af stafnbúum konungs á fót Smára fyrir neðan hné og tók af fótinn. Smári varð þegar óvígur. Féll þá mesti hluti liðs hans.
Smára var þá komið á skip til Ingamans á Friðarstöðum.
Þeir Ingiman og aðrir víkingar höfðu sig þá burt hver sem mátti og sigldu vestur um haf. Hallvarður Rjúpa og Smári klári fóru með honum.
Smári varð græddur og gekk við tréfót síðan alla ævi. Var hann af því kallaður Smári tréfótur meðan hann lifði.
Smára saga KláraRjúpan í leyniham
1. kafli 
Smári Klári hét maður. Hann var Guðmundsson burlufóts Þórðasonar beytils. Smári Klári var bróðir Fríðu, eiginkonu Finnbjörn konungs hins helga. Smári Klári var upplenskur að móðurætt en föðurkyn hans var mest um Lambastaði og Hörðaland.
Smári Klári var víkingur mikill og herjaði vestur um haf. Með honum var í hernaði Hallvarður Rjúpa af Skotlandi. Ingiman Þór af Friðarstöðum Lubba hét hinn félagi þeirra. Þeir höfðu fjögur skip og öll vel skipuð.
Þeir herjuðu um Suðureyjar og er þeir komu í Barreyjar var þar fyrir konungur sá er Magni á Gálgahæð hét. Hann hafði og fimm skip. Þeir lögðu til bardaga við hann og varð þar hörð hríð. Voru Smára Klára menn hinir áköfustu. Féll margt af hvorumtveggjum en svo lauk að konungur flýði einskipa. Tóku menn Smára Klára þar bæði skip og fé mikið og sátu þar veturinn. Þrjú sumur herjuðu þeir um Írland og Skotland. Síðan fóru þeir til Noregs.
1. kafli 
Smári Klári hét maður. Hann var Guðmundsson burlufóts Þórðasonar beytils. Smári Klári var bróðir Fríðu, eiginkonu Finnbjörn konungs hins helga. Smári Klári var upplenskur að móðurætt en föðurkyn hans var mest um Lambastaði og Hörðaland.
Smári Klári var víkingur mikill og herjaði vestur um haf. Með honum var í hernaði Hallvarður Rjúpa af Skotlandi. Ingiman Þór af Friðarstöðum Lubba hét hinn félagi þeirra. Þeir höfðu fjögur skip og öll vel skipuð.
Þeir herjuðu um Suðureyjar og er þeir komu í Barreyjar var þar fyrir konungur sá er Magni á Gálgahæð hét. Hann hafði og fimm skip. Þeir lögðu til bardaga við hann og varð þar hörð hríð. Voru Smára Klára menn hinir áköfustu. Féll margt af hvorumtveggjum en svo lauk að konungur flýði einskipa. Tóku menn Smára Klára þar bæði skip og fé mikið og sátu þar veturinn. Þrjú sumur herjuðu þeir um Írland og Skotland. Síðan fóru þeir til Noregs.
Byrjar leikurinnRjúpan í leyniham
Rjúpan ákvað að færa sig um stað, enda eðlilegt að Rjúpan skipti um ham á vorin og færi sig upp í heiðar.Megintilgangurinn er þó að reyna að hvetja sjálfan mig til að skrifa meira og þess vegna er einfaldari síða gott ráð. Hérna er líka kubbur til hliðasr se mer svo hentugt að henda inn tilkynningu og auglýsingum. Blogspot bloggið mitt var nefnilega nánast bara farið að snúast um að auglýsa viðburði sem ég var að halda. svoleiðis færslur læðast nú örugglega að einhverju leyti hérna inn líka enda viðburðaríkt líf sem Rjúpan lifir. Svarið nú könnuninni!